Jólagjöf til starfsmanna Fjallabyggðar – Gjafabréf

 

Fjallabyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í Fjallabyggð sem hafa áhuga á að vera með í að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins.

Gjafabréfin virka sem greiðsla upp í kaup á vöru og þjónustu í Fjallabyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda á skrifstofu Fjallabyggðar gegn framvísun gjafabréfsins. Mælst verður til þess að handhafar gjafabréfa noti þau á tímabilinu 1. desember 2025 til og með 20. janúar 2026 en þau falla þó ekki úr gildi á árinu.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að viðkomandi sé með starfsemi í Fjallabyggð. Skráningarfrestur er til og með 17. nóvember.

Tekið er við skráningu í hlekknum hér fyrir neðan.

Skráning í gjafabréf

 

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is