Jólaandinn svífur yfir Ólafsfirði

Jólaandinn sveif yfir þegar jólaljósin voru tendruð á jólatrénu við Tjarnarborg í Ólafsfirði á föstudag. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir flutti hugvekju og Tinna Hjaltadóttir og Guðmann Sveinsson tóku nokkur jólalög auk þess sem börn úr leikskólanum Leikhólum sungu jólalög. Þá tóku nokkrir jólasveinar forskot á sæluna og mættu til byggða til þess að hitta börnin.

Sama kvöld var jólakvöld í miðbænum þar sem jólamarkaður var í menningarhúsinu og í jólahúsum fyrir utan. Þá var opið í verslunum og veitingastöðum fram eftir. Bjössi brunabangsi kom og hitti börnin og Húlla Dúlla var með skemmtiatriði.

Meðfylgjandi myndir voru teknar á viðburðinum á Ólafsfirði.