Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.–30. september.

 

Íþróttavika Evrópu verður haldin dagana 23.–30. september. Af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta og opna hreyfitíma.

Meðal þess sem verður í boði er gönguhópur 60+, boccia, pokavarp, Ringó og blak. Nánari upplýsingar um dagsetningar og tímasetningar má sjá á meðfylgjandi auglýsingu.

Fjallabyggð býður jafnframt íbúum frítt í sund dagana 23.–30. september í tilefni vikunnar.

Íbúar eru hvattir til að taka þátt, prófa fjölbreytta hreyfingu og njóta góðrar samveru.