Hjólaferð nemenda um Héðinsfjarðargöng þriðjudag 3. júní.

Á morgun, miðvikudaginn 3.júní, munu nemendur og starfsfólk Grunnskóla Fjallabyggðar hjóla frá Siglufirði til Ólafsfjarðar um Héðinsfjarðargöng. Ferðin er farin í samráði við Samfélagslögregluna og er liður á útivistardegi nemenda.
 
Hópurinn verður á ferðinni á milli kl. 9:30 og 11:00 og verða þátttakendur vel merktir.
 
Við biðjum alla vegfarendur sem eiga leið um göngin á þessum tíma að sýna sérstaka aðgát, fara varlega, virða hraðatakmarkanir og sýna hjólafólkinu tillitssemi. Með samstilltu átaki getum við tryggt að ferðin verði bæði örugg og ánægjuleg fyrir alla.
 
Við þökkum fyrirfram fyrir skilning, þolinmæði og góða samvinnu.
Grunnskóli Fjallabyggðar