Hjólað í vinnuna 2026

Heilsuátakið Hjólað í vinnuna hefst 1. maí og stendur yfir allan maímánuð. Verkefnið er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og hefur það markmið að hvetja fólk til að nýta virkan og heilsusamlegan ferðamáta til og frá vinnu.

Allir geta tekið þátt – hvort sem þú hjólar, gengur eða nýtir annan virkan ferðamáta. Hver ferð skiptir máli og getur haft jákvæð áhrif á bæði heilsu og umhverfi.

Átakið stendur frá 1.–31. maí og er tilvalin leið til að auka daglega hreyfingu, bæta líðan og skapa skemmtilega stemningu á vinnustaðnum .

Við hvetjum íbúa og fyrirtæki í Fjallabyggð til að taka þátt í þessari skemmtilegu áskorun!

skráning er hér