Heimsókn frá hressum krökkum úr 4. bekk

Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar komu í heimsókn í ráðhúsið í morgun. Mynd/HS
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar komu í heimsókn í ráðhúsið í morgun. Mynd/HS

Í dag fengum við skemmtilega heimsókn í ráðhúsið þegar nemendur úr 4. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar kíktu í heimsókn ásamt kennurum sínum. Tilefnið var að afhenda lista þar sem þau bentu á hvað mætti bæta í umhverfinu en einnig deildu þau því sem þau eru ánægð með í sveitarfélaginu.

Starfsmenn ráðhússins tóku vel á móti hópnum og áttu notalegt spjall við krakkana. Bæjarstjóri fékk erindið afhent og var mjög ánægður með framtakið og áhugann sem börnin sýna umhverfi sínu og sveitarfélaginu. Bæjarstjóri mun taka erindi barnanna fyrir á fundi bæjarráðs.

Við þökkum kærlega fyrir heimsóknina og hlökkum til að vinna áfram að því að gera Fjallabyggð enn betri stað fyrir alla!