Hafdís Huld Björnsdóttir hefur verið valin til að taka við starfi bæjarstjóra Fjallabyggðar. Gert er ráð fyrir að bæjarstjórn staðfesti ráðninguna á næsta fundi bæjarstjórnar. Alls bárust 22 umsóknir um starfið en einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Hafdís Huld er með meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) og BS-próf í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun. Hún hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, verkefnastjórnun og breytingastjórnun og hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri og stofnandi ráðgjafarfyrirtækisins RATA. Hún hefur leitt fjölmörg verkefni fyrir sveitarfélög, opinbera aðila og fyrirtæki um land allt og hefur áður búið bæði á Ólafsfirði og Siglufirði.
„Við erum mjög ánægð með ráðningu Hafdísar. Hún býr yfir öflugri reynslu, skýrri framtíðarsýn og sterkum leiðtogahæfileikum sem munu nýtast Fjallabyggð vel. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, forseti bæjarstjórnar.
Hafdís segist þakklát fyrir það traust sem henni sé sýnt.
„Ég hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki sveitarfélagsins, kjörnum fulltrúum og atvinnulífinu að áframhaldandi uppbyggingu Fjallabyggðar. Ég hlakka líka til að kynnast samfélaginu enn betur, fólkinu sem þar býr, verkefnunum framundan og öllum fjöllunum sem ég á eftir að ganga á.“ segir Hafdís.
Ráðningin er með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar sem kemur til fundar í næstu viku. Hafdís kemur til starfa 1. september 2026.“
Meðfylgjandi er mynd af Hafdísi og ljósmyndari er: Cat Gundry-Beck