Gulur september, tökum þátt og sýnum samstöðu.

September er tileinkaður geðrækt og sjálfsvígsforvörnum undir yfirskriftinni Gulur september. Markmið verkefnisins er að auka meðvitund um mikilvægi geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna og vera tákn um kærleika, umhyggju og von.

Fjallabyggð hvetur fyrirtæki, stofnanir og íbúa til að taka þátt í Gulum september. Hægt er að sýna stuðning með ýmsum hætti, til dæmis með því að klæðast gulu, lýsa upp byggingar, skreyta vinnustaði eða standa fyrir heilsueflandi viðburðum og umræðu um geðheilbrigði.

Fimmtudaginn 10. september er hinn eiginlegi Guli dagur, en allur septembermánuður er tileinkaður verkefninu.

Nánari upplýsingar og hugmyndir að þátttöku má finna á www.gulurseptember.is

Tökum höndum saman, sýnum samstöðu og minnum hvert annað á að það er alltaf von.