Grunnskóli Fjallabyggðar hefur hafið innleiðingu á Heillasporum

Heillaspor – hlýja, tengsl og vellíðan í skólastarfi

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur hafið innleiðingu á Heillasporum (e. Nurture) með það að markmiði að skapa tengslamiðað og öruggt skólasamfélag sem styður enn frekar við vellíðan barna, virka þátttöku þeirra og árangur í námi.

Heillaspor eru heildræn nálgun sem byggir á fræðum um tengsl og áhrif áfalla á þroska og líðan barna. Í nálguninni er lögð áhersla á að börn læri og þroskist best þegar þau upplifa öryggi, traust, hlýju og góð tengsl við fólkið í kringum sig. Jafnframt er horft til styrkleika hvers og eins og þess sem stuðlar að vellíðan, seiglu og jákvæðri sjálfsmynd.

Hvað felst í Heillasporum?

Leiðandi vörður Heillaspora eru vegvísar að samræmdum vinnubrögðum og hvetja starfsfólk til að ígrunda eigin starfshætti, viðhorf, samskipti og umhverfi á dýptina. Í daglegu skólastarfi er meðal annars lögð áhersla á að:

  • Byggja upp jákvæð og traust tengsl milli nemenda og starfsfólks.
  • Skapa öruggt og hlýlegt námsumhverfi þar sem allir tilheyra.
  • Skilja hvernig reynsla og aðstæður geta haft áhrif á hegðun, líðan og nám barna.
  • Efla sjálfsmynd, sjálfstraust og trú nemenda á eigin getu.
  • Styðja nemendur í að þekkja, tjá og takast á við eigin tilfinningar.
  • Rækta styrkleika, samkennd, þakklæti og jákvæð samskipti.
  • Þjálfa félagsfærni, aðstoða nemendur við að finna sameiginlegar lausnir og að takast á við áskoranir á uppbyggilegan hátt.

 

Meðfylgjandi mynd sýnir vörður Heillaspora.

Innleiðing Heillaspora í skólanum

Við erum nú á fyrstu stigum innleiðingar Heillaspora. Innleiðingin er þróunarferli sem tekur tíma og kallar á sameiginlega sýn, samvinnu og stöðuga ígrundun. Áhersla verður

lögð á að starfsfólk fái fræðslu, stuðning og tækifæri til að þróa starfshætti sína í takt við hugmyndafræði Heillaspora. Við munum því innleiða nálgunina í áföngum og flétta hana smám saman inn í daglegt skólastarf, samskipti, kennslu og skólamenningu. Markmiðið er ekki að bæta við nýju verkefni heldur að efla þá vinnu sem þegar fer fram og skapa sameiginlegan grunn að enn betri samskiptum og stuðningi við nemendur.

Hlustað á raddir allra – kortlagning skólastarfsins

Mikilvægur þáttur í innleiðingu Heillaspora er að öðlast sem skýrasta mynd af því hvernig skólastarfið okkar lítur út í dag. Við viljum hlusta á ólík sjónarmið og fá fram upplifun þeirra sem tilheyra skólasamfélaginu okkar. Aflað verður upplýsinga með spurningakönnunum meðal foreldra, starfsfólks skólans og skólastjórnenda. Einnig verður óskað eftir þátttöku foreldra í rýnihópum og rætt verður við fulltrúa nemenda á öllum skólastigum. Með þessu móti gefst ólíkum hópum innan skólasamfélagsins tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og hafa áhrif á þróun skólastarfsins.

Tilgangurinn er að fá sem heildstæðasta mynd af veruleika starfsstöðva og skólastarfsins eins og hann er í dag. Niðurstöður verða svo nýttar til að greina styrkleika, koma auga á tækifæri til úrbóta og ákveða hvaða skref eru mikilvægust í áframhaldandi innleiðingu Heillaspora. Við leggjum áherslu á að raddir allra skipta máli og hvetjum því foreldra og nemendur til að taka virkan þátt þegar eftir því er leitað. Framlag ykkar er afar mikilvægt í þessari vegferð.

Hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS)

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) er faglegur bakhjarl Heillaspora á Íslandi og styður skóla og sveitarfélög við innleiðinguna. MMS leggur meðal annars til fræðslu, stuðningsefni og faglega leiðsögn við starfsþróun fyrir starfsfólk og skólaþjónustu. Samstarf við MMS styður við að innleiðingin byggi á traustum fræðilegum grunni og að unnið sé markvisst að því að þróa og festa nýja starfshætti í sessi.

Foreldrar eru mikilvægir samstarfsaðilar

Góð tengsl milli heimilis og skóla skipta miklu máli. Með sameiginlegri áherslu á hlýju, virðingu, öryggi og jákvæð samskipti getum við stutt enn betur við velferð og þroska barna. Við munum miðla upplýsingum um framgang innleiðingarinnar eftir því sem verkefninu vindur fram og hvetjum foreldra til að fylgjast með og taka þátt í samtalinu um vellíðan og velferð nemenda.

Nú er í gangi spurningakönnun fyrir foreldra sem Grunnskóli Fjallabyggðar hefur sent út í gegnum Námfús og hvetjum við foreldra til þátttöku.

 

Við viljum að hver nemandi finni að hann tilheyri, sé metinn að verðleikum, fái að njóta styrkleika sinna og hafi mikilvægu hlutverki að gegna í skólasamfélaginu.

Nánari upplýsingar um Heillaspor má nálgast hér Heillaspor