Mynd: Örlygur Kristfinnsson
Fuglavinafélag Siglufjarðar opnaði formlega nýja og glæsilega vefsíðu laugardaginn 5. apríl sl. Athöfnin fór fram í Ráðhúsi Fjallabyggðar þar sem Guðrún Hauksdóttir, forseti bæjarstjórnar, fékk þann heiður að smella á hnappinn og opna síðuna opinberlega.
Lydia Athanasopoulou formaður stjórnar Fuglavinafélagsins, hóf samkomuna með áhugaverðri kynningu á sögu og tilgangi félagsins. Þá tók Örlygur Kristfinnsson við og fór yfir efni síðunnar ásamt því að deila skemmtilegum frásögnum af fuglalífinu í Siglufirð og mikilvægi að miðla áfram þekkingu og eiga samstarf við Grunnskóla Fjallabyggðar eins og hefur tíðkast til fjölda ára.
Á nýju heimasíðunni má finna margvíslegt efni, svo sem ljósmyndir, greinar, sögur og fréttir tengdar fuglalífi svæðisins. Þar með er stigið stórt skref í átt að því að byggja upp varanlegan upplýsingabanka um fuglalíf í Siglufirði og nærliggjandi svæðum. Fuglavinafélagið er sjálfstætt félag fuglaskoðara og náttúruunnenda sem sameinast í ástríðu sinni fyrir fuglum og búsvæðum þeirra. Félagsmenn leggja sig fram við að fylgjast með, skrá og vernda hið auðuga fuglalíf á svæðinu og leggja áherslu á að miðla þekkingu og hvetja nýjar kynslóðir til að standa vörð um náttúruna
Heimasíðan er nú öllum opin og hvetjum við alla áhugasama jafnt reynda fuglaskoðara sem byrjendur að kynna sér efnið og fylgjast vel með nýjum fréttum.
Heimasíða Fulgavinafélgs Siglufjarðar