Framkvæmdir við Íþróttamiðstöð Siglufjarðar hefjast 15. júní

Lokun sundlaugarinnar á Siglufirði vegna framkvæmda hefst 15. júní 2026. Af því tilefni býður Íþróttamiðstöð Fjallabyggðar eigendum sund- og líkamsræktarkorta að frysta kort sín endurgjaldslaust á meðan á framkvæmdum stendur.

Þeir sem óska eftir að frysta kort sín eru hvattir til að hafa samband með því að senda tölvupóst á skarphedinn@fjallabyggd.is eða mæta í afgreiðslu Íþróttamiðstöðvar Siglufjarðar.

Bent er á að líkamsræktarsalur Íþróttamiðstöðvar Siglufjarðar verður áfram opinn virka daga og að sundlaug og líkamsrækt í Ólafsfirði verða opnar samkvæmt auglýstum opnunartíma.

Nýja opnunartíma Íþróttamiðstöðvar Fjallabyggðar frá og með 15. júní má sjá á meðfylgjandi auglýsingu.

Við þökkum fyrir sýndan skilning á meðan á framkvæmdum stendur.

Sjá má opnunartíma hér