Ástarpungarnir og kvennarkórinn Hytturnar tóku lagið saman.
Ástarpungarnir voru formlega útnefndir Bæjarlistamenn Fjallabyggðar 2026 við hátíðlega athöfn í Alþýðuhúsinu á Siglufirði síðastliðinn föstudag. Útnefningin fór fram í einu af þeim menningarhúsum sem Fjallabyggð hefur upp á að bjóða og eftirleiðis vill sveitarfélagið nota þennan vettvang til þess að kynna menningarhúsin fyrir íbúum og gestum samfélagsins.
Auk þess að útnefna bæjarlistamennina veitti Fjallabyggð styrki til handa safna og setra, menningarmála og stærri viðburða í sveitarfélaginu.
Við tilefnið kom fram nýstofnaður kvennakór Fjallabyggðar, Hytturnar sem og að Ástarpungarnir tóku lagið.
Fjallabyggð óskar bæjarlistamönnum hamingjuóskir með útnefninguna sem og öllum styrkþegum sem öll hafa auðgað samfélagið með listsköpun sinni.
Hér má sjá lista yfir styrkþega 2026

Bæjarlistamenn Fjallabyggðar 2026 - Ástarpungarnir
f.v. Rodrigo Lopes, Mikael Sigurðarson, Guðmann Sveinsson, Tryggvi Þorvaldsson, Júlíus Þorvaldsson og Hörður Ingi Kristjánsson.

Styrkþegar safna og setra í Fjallabyggð 2026 - Fjallasalir ses., Ljóðasetur Íslands og Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.

Styrkþegar vegna stærri hátíða í Fjallabyggð 2026 - Frjó og Leysingar listahátíðir, Berjadagar, Þorrablót í Fjallabyggð, Jólakvöld í Fjallabyggð, Mydasöguhátíð, Sjómannadagshátíð, Fjarðargangan, Síldarævintýri á Siglufirði, Ungmenafélagið Glói og Þjóðlagahátíð.

Menningarstyrkir í Fjallabyggð 2026 - Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Arnfinna Björnsóttir, Ave Tonisson, Bridgefélag Fjallabyggðar, Emma Louise Sandersen, Ferðafélagið Trölli, Fjallasalir Sigurhæðir ses., Hildur Örlygsdóttir, Ida Semey, Kirkjukór Ólafsfjarðar, Kóreldri borgara í Fjallabyggð, Kvennfélagið Æskan, Kvennakórinn Hytturnar, Leikfélag Fjallabyggðar og Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar.

