Flutningur gámasvæðis hafinn

Flutningur gámasvæðis sem hefur verið norðan við Óskarsbryggju hófst í morgun. Nýtt svæði er við Ránargötu gengt móttökusvæði Íslenska gámafélagsins. Flutningurinn hefur verið unnin í samvinnu við eigendur gámanna og voru þeir til staðar þegar flutningurinn hófst í morgun. Áætlað er að verkinu ljúki á föstudag í næstu viku.

Í ágúst verður hafist handa við tiltekt á gámasvæðinu á Ólafsfirði. Það verkefni er unnið í samvinnu við Hringrás. Bæði verkefnin eru hluti af átakinu Fegrum Fjallabyggð.


Gámunum komið fyrir á nýju svæði við Ránargötu.


Útlitið á gámasvæðinu sem nú er verið að flytja. Mynd tekin fyrir nokkrum vikum síðan.