Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Ari Jónsson, nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Ísland í Evrópukeppni í fjármálalæsi. Mynd/www.sff.is
Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí síðastliðinn. Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt. Sigurvegarar keppninnar í ár var lið Ítalíu.
Yfir 73.000 nemendur í um 3000 grunnskólum í 30 löndum Evrópu tóku þátt í undankeppnum heima fyrir og þar af hátt í 2.000 nemendur í 60 skólum hér á landi þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum. Keppendur frá Íslandi voru því hlutfallslega mun fleiri en almennt innan Evrópu. Fulltrúar sigurskólanna í hverju komu síðan saman til Brussel í Evrópukeppnina.
Í keppninni svara þátttakendur spurningum um þekkingu þeirra almennt á persónulegum fjármálum eins og um sparnað og lán og vexti, áhrif verðbólgu á virði peninga og mikilvægi netöryggis.
Nánar má lesa um keppnina á vef Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu þaðan sem fréttin og myndin er fengin.