Flotbryggja til sölu

Sveitarfélagið Fjallabyggð auglýsir eftir tilboðum í flotbryggju sem staðsett er á hafnarsvæðinu á Ólafsfirði. Flotbryggjan er ekki í góðu standi og verður fargað ef ekki fást tilboð í hana. Tilboð skulu berast á tölvupóstfangið gisli@fjallabyggd.is fyrir kl 12:00 mánudaginn 4. maí. Ætlast er til þess að hún verði fjarlægð fyrir kl. 16:00 föstudaginn 15. maí. Verði tilboðsgjafi ekki búinn að fjarlægja hana fyrir þann tíma verður hún fjarlægð og henni fargað.

Frekari upplýsingar veitir sviðsstjóri Skipulags og framkvæmdasviðs í gegnum tölvupóstfangið gisli@fjallabyggd.is eða í síma 464-9100.