Fjárhagsáætlun 2027 – ábendingar og tillögur frá íbúum

Við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027 hefur verið opnað fyrir ábendingar og tillögur frá íbúum varðandi fjárhagsáætlunargerðina, s.s. varðandi framkvæmdir, viðhald, fegrun opinna svæða o.fl.

Hægt er að senda inn ábendingar og/eða tillögur í þjónustugátt Fjallabyggðar á heimasíðu sveitarfélagsins og er frestur til og með 20. október nk.