Fjarðargangan og skíðamót í Skarðinu

Það verður nóg um að vera í Fjallabyggð um komandi helgi.

Undirbúningur stendur sem hæst fyrir bikarmót Skíðasambands Íslands fyrir 12–15 ára keppendur sem fram fer á skíðasvæðinu á Siglufirði í Skarðsdal um helgina. Um 90 keppendur eru skráðir til leiks og lýkur skráningu í dag, 12. febrúar.



Þetta er í fyrsta sinn í rúman áratug sem mót af þessari stærðargráðu er haldið á Siglufirði og ríkir mikil eftirvænting í bænum. Skíðafélag Siglufjarðar (SSS) sótti um að halda mótið til SKÍ og var úthlutað þessu bikarmóti, fyrsta unglinga bikarmóti ársins.

SSS sér alfarið um framkvæmd mótsins, en þar sem langt er liðið frá síðasta stórmóti á svæðinu hefur reynsla í mótahaldi verið takmörkuð. Því leitaði SSS til nágranna sinna á Dalvík og Akureyri, og Skíðadeild Ármanns.

„Þessi aðstoð er okkur ómetanleg,“ segir mótastjórn. „Við ætlum að nýta þekkingu og reynslu þessara félaga til að efla okkar eigið mótahald og byggja upp traustan grunn fyrir framtíðina.“

Foreldrar iðkenda í SSS, ömmur, afar og velunnar skíðafélagsins hafa lagt hönd á plóg og er mikill hugur í hópnum að gera mótið sem glæsilegast. Búist er við skemmtilegri keppni, góðri þátttöku og frábærri skíðastemningu þegar efnilegir skíðaungmenni víðs vegar af landinu renna sér í brautinni um helgina.

Fjarðargangan í 40. sinn

Fjarðargangan á Ólafsfirði er hluti af Íslandsgöngum SKÍ. Trimmganga fyrir alla fjölskylduna. Fjarðargangan fer nú fram í 40. skipti og mun fara fram á Lágheiði.

Veðurspáin lofar góðu, en það verður kalt, aðstæður eru flottar á heiðinni. Það verður 5km hringur, barnaganga 500m ca og stemmningin verður til staðar þrátt fyrir að vera ekki í miðbæ Ólafsfjarðar eins og venjulega er. Akstur frá bænum tekur um 20 min upp á Lágheiði frá Ólafsfjarðarbæ.

Enn er opið fyrir skráningu og hægt að smella hér til að skrá sig og skoða dagskránna.