Fjalladýrð nýr ferðaklasi stofnaður í Fjallabyggð

 

Fimmtudaginn 26. febrúar fór fram stofnfundur nýs ferðaklasa í Fjallabyggð á Sigló Hótel. Fundurinn markaði mikilvægt skref í átt að auknu samstarfi og samhæfingu ferðaþjónustuaðila á svæðinu.

Á fundinum voru kynntar niðurstöður úr kynningarfundum sem áður höfðu verið haldnir á Ólafsfirði og Siglufirði, þar sem áhugi og vilji til aukins samstarfs kom skýrt fram. Fundarmenn áttu í framhaldinu samtal um framtíðarsýn og fyrstu verkefni klasans. Kosið var um nafn á nýjum klasa og varð niðurstaðan sú að hann hlaut nafnið Fjalladýrð, sem vísar til þeirrar einstöku náttúru og umgjörðar sem einkennir Fjallabyggð. Á fundinum var jafnframt kosin stjórn skipuð sjö aðalmönnum og tveimur varamönnum. Ný stjórn mun vinna áfram að mótun samþykkta og útfærslu á fyrirkomulagi aðildar og félagsgjalda.

Í bæjarráði hefur jafnframt verið samþykkt aðkoma Fjallabyggðar að verkefninu með fjárframlagi, að því gefnu að tilskilinn fjöldi félaga náist. Sú ákvörðun undirstrikar mikilvægi samstarfsins og stuðning sveitarfélagsins við eflingu ferðaþjónustu á svæðinu.

Með stofnun Fjalladýrðar er lagður grunnur að öflugu samstarfi sem miðar að því að styrkja ferðaþjónustu í Fjallabyggð, auka sýnileika svæðisins og skapa sameiginleg tækifæri til vaxtar og þróunar.