Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkið: SNJÓMOKSTUR OG HÁLKUVARNIR Í FJALLABYGGÐ 2026 - 2029

Fjallabyggð óskar eftir tilboðum í verkið:

SNJÓMOKSTUR OG HÁLKUVARNIR Í FJALLABYGGÐ 2026 - 2029

Verkefnið felst í hreinsun á snjó og krapa af götum, gangstéttum, göngustígum og bifreiðastæðum ásamt snjómokstri og akstri auk sandburðar eða saltdreifingar á götur, gangstéttir, göngustíga og bifreiðastæði.

Lögð er áhersla á að fram komi tilboð sem taki mið af þessum möguleikum;

1. Útboð miðast við Fjallabyggð, báða byggðarkjarna bæjarfélagsins

2. Útboð miðast við Siglufjörð eingöngu

3. Útboð miðast við Ólafsfjörð eingöngu

Bjóðendur skulu hafa starfsstöð í Fjallabyggð eða skuldbinda sig til að setja upp starfsstöð áður en samningstími hefst.

Útboðsgögn eru aðgengileg í gegnum beiðni á netfangið gisli@fjallabyggd.is frá og með 05. Október 2026. Bjóðendur skila inn tilboðsblaði og tilboðsskrá í tölvupósti á netfangið gisli@fjallabyggd.is eða í lokuðu og merktu umslagi í afgreiðslu þjónustuvers Fjallabyggðar að Gránugötu 24, 580 Siglufirði eigi síðar en kl. 13:00 þann 27. október 2026. Opnunarfundur verður á skrifstofu Fjallabyggðar.