Fjallabyggð auglýsir eftir verkefnastjóra við skipulags – og framkvæmdasvið.

Fjallabyggð auglýsir eftir verkefnastjóra við skipulags- og framkvæmdasvið.

Undir sviðið falla meðal annars eignaumsjón, lóða- og skipulagsmál, umhverfismál, þjónustumiðstöð, veitur og hafnir, sorphirða og úrgangsmál.

Helstu verkefni verkefnastjóra:

· Skipulagning umhverfismála og viðhalds opinna svæða

· Skipulagning og eftirfylgni með sorphirðu og úrgangsmálum

· Samskipti við verktaka

· Vinnuskóli Fjallabyggðar

· Umsjón með minniháttar viðhaldi eigna Fjallabyggðar í samráði við stofnanir

· Vinna við gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana í samráði við sviðsstjóra

· Dýrahald og eftirlit

Þekkingar- og hæfnikröfur

· Menntun sem nýtist í starfi

· Góðir samskiptahæfileikar

· Reynsla af verkefnum sem falla að starfinu

· Reynsla af verkefnamiðuðum vinnubrögðum er skilyrði

· Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti

· Góð tölvukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 20. maí nk.

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfi umsækjenda.

Umsóknum skal skilað á  netfang bæjarstjóra,  í síðasta lagi 20. maí.

Nánari upplýsingar veita:

Þórir Hákonarson bæjarstjóri

Gísli D. Sævarsson sviðsstjóri gisli.david.saevarsson@fjallabyggd.is