Auglýst er eftir starfsfólki í eftirfarandi störf:
Umsjónarmanni/svæðisstjóra í 100% starf frá 1. desember 2026 til 31.maí 2027
Helstu verkefni
- Dagleg stjórnun og umsjón með rekstri skíðasvæðisins.
- Skipulagning vinnu og verkstjórn starfsmanna.
- Umsjón með lyftum, tækjabúnaði og öðrum mannvirkjum svæðisins.
- Eftirlit og framkvæmd í öryggismálum.
- Umsjón með viðhaldi búnaðar og eftirfylgni við reglubundnar skoðanir.
- Þátttaka í fjárhags- og rekstrareftirliti í samráði við yfirmenn.
- Samskipti við gesti, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila.
- Undirbúningur skýrslna og upplýsinga til stjórnenda sveitarfélagsins.
- Önnur verkefni sem falla eðlilega undir starfssvið umsjónarmanns.
- Samstarf við björgunarsveit, snjóflóðaeftirlit og aðra þjónustuaðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun og/eða rekstri er æskileg.
- Þekking og reynsla af skíðasvæðarekstri eða sambærilegri starfsemi er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð tölvukunnátta.
- Gild ökuréttindi.
- Vinnuvélaréttindi eru kostur
- Hæfni til að vinna undir álagi og bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við íþróttalög og æskulýðslög
Almennum starfsmanni á svæðinu í 100% starf frá 1.desember 2026 til 31. maí 2027
Helstu verkefni
- Undirbúningur svæðis fyrir opnun
- Aðstoð við umsjón með rekstri svæðisins
- Skipulagning á vöktum í samráði við svæðisstjóra
- Lyftuvarsla
- Umsjón með skíðaleigu
- Umsjón með miðasölu
- Aðstoð við viðhaldsverkefni á svæðinu
- Ræsting á mannvirkjum á svæðinu
- Samskipti við gesti, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
- Þekking og reynsla af skíðasvæðarekstri eða sambærilegri starfsemi er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Góð tölvukunnátta.
- Gild ökuréttindi.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við íþróttalög og æskulýðslög
Tveimur starfsmönnum til vinnu á snjótroðurum og undirbúningi svæðis
Helstu verkefni
- Snjótroðsla og undirbúningur á skíðabrekkum
- Daglegt eftirlit og umhirða snjótroðara og annarra vinnuvéla
- Viðhald og viðgerðir á vélum og tækjabúnaði
- Viðhald og eftirlit með skíðalyftum og öðrum búnaði skíðasvæðisins
- Undirbúningur svæðisins fyrir opnun og frágangur að loknum opnunartíma
- Snjómokstur og önnur verkefni tengd snjó og færð
- Þátttaka í almennum rekstri og öryggismálum skíðasvæðisins
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa gild vinnuvélaréttindi
- Reynsla af störfum á skíðasvæði er kostur.
- Reynsla af vinnu við vinnuvélar, vélar, stór tæki eða sambærilegan búnað.
- Mikil og góð þekking á viðhaldi, rekstri og umhirðu tækja og búnaðar.
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Góð hæfni til að greina og leysa vandamál sem upp geta komið í daglegum rekstri.
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Ábyrgðarkennd, stundvísi og rík öryggisvitund.
- Sveigjanleiki og vilji til að vinna á óhefðbundnum vinnutímum þegar aðstæður krefjast þess.
- Gild ökuréttindi
Áhugasömum aðilum er bent á að senda inn umsókn og upplýsingar á fjallabyggd@fjallabyggd.is og er frestur til og með 10.október n.k.
Frekari upplýsingar veitir Þórir Hákonarson í síma 860-2069 eða með tölvupósti á póstfangið thorirh@fjallabyggd.is