Fjallabyggð átti fulltrúa á Ungmennaþingi SSNE

mynd:SSNE
mynd:SSNE

Fjallabyggð átti fulltrúa á Ungmennaþingi SSNE

Fjallabyggð átti þrjá fulltrúa á SSNE ungmennaþingi sem fram fór nýverið. Fulltrúarnir voru þau Hilmir, Jasmín og Jana sem tóku þátt í fjölbreyttri dagskrá ásamt ungmennum víðs vegar af Norðurlandi eystra.

Ungmennaþing SSNE er vettvangur þar sem ungt fólk kemur saman til að ræða málefni sem brenna á því, miðla reynslu og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Markmið þingsins er meðal annars að efla þátttöku ungmenna í samfélaginu, styrkja tengslanet þeirra og auka áhrif þeirra á ákvarðanatöku.

Fulltrúar Fjallabyggðar stóðu sig afar vel en slík þátttaka er mikilvæg fyrir þróun samfélagsins og tryggir að rödd ungs fólks heyrist í mótun framtíðarinnar.