Fimm ár með varðskipið Freyju í heimahöfn á Siglufirði

Einar Valsson skipherra ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum
Einar Valsson skipherra ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum

Í dag 6. nóvember eru liðin fimm ár frá því varðskipið Freyja lagðist að bryggju í fyrsta sinn á Siglufirði þar sem skipið á heimahöfn. Af því tilefni bauð Einar Valsson skipherra bæjarstjórn Fjallabyggðar í heimsókn um borð í skipið þar sem farið var í skoðunarferð og starfsemin kynnt kjörnum fulltrúum.

Nýverið endurnýjuðu Landhelgisgæslan og Fjallabyggð samstarfssamning sinn um aðstöðu skipsins á Siglufirði og þjónustu við það.

Meðal ástæðna fyrir því að Freyja hafi verið valin staður á Norðurlandi er til að mynda að vegna aukinna skipaferða um norðurslóðir fjölgar ferðum stórra flutninga- og olíuskipa með austur- og norðurströndum Íslands. Með varðskipinu Þór í Reykjavík og Freyju á Siglufirði hefur viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar umhverfis landið verið aukin og hægara verður um vik að tryggja öryggi sjófarenda, landsmanna og auðlinda í hafi.