
Fegurð fjarða er samheiti yfir listsýningar, fræðslusýningar og margs konar viðburði sem verða á átta stöðum við Eyjafjörð, Siglufjörð og Ólafsfjörð sumarið 2025. Þetta er margþætt verkefni sem unnið verður í samstarfi við heimamenn og er markmiðið að vekja fólk til umhugsunar um ábyrgð og hlutverk hvers og eins í umgengni við haf og strönd.
Um Sjómannadagshelgina 2025 verða ljósmyndasýningar opnaðar á öllum átta stöðunum og standa þær til 1. október 2025. Ljósmyndirnar eru eftir Veigu Grétarsdóttur, kajakræðara og umhverfissinna. Verkefnið er unnið að frumkvæði Vitafélagsins - íslensk strandmenning.
Ljósmyndirnar endurspegla það fallega umhverfi sem umvefur okkur hér á norðurslóðum en benda okkur jafnframt á viðkvæmni þess. Markmiðið er að fræða og á myndrænan hátt benda á nauðsyn þess að umgangast vistkerfi hafsins á ábyrgan hátt. Ásamt ljósmyndunum má finna fræðslu og tölfræðilegar staðreyndir um plastmengun, unnar í samstarfi við Umhverfisstofnun.
Þannig er markmið verkefnisins ekki einungis að sýna fallegar myndir af sjó og landi heldur einnig að efla vitund um mengun og áhrif hennar á lífríki hafs og stranda.
Heimasíða viðburðar
Viðburðir - opnun sýninga
Föstudagur 30. maí 2025
Laugardagur 31. maí 2025
Sunnudagur 1. júní 2025