Fegrum Fjallabyggð - Hreinsunarátak heldur áfram á Sigló og Óló

„Fegrum Fjallabyggð" – Hreinsunarátak heldur áfram og verður heilbrigðiseftirlitið á ferð á Siglufirði og Ólafsfirði í dag.

Undanfarið hafa eigendur járnarusls, bílhræja og annarra hluta verið hvattir til þess að koma þeim á sorpsvæði eða vera í sambandi við sveitarfélagið varðandi förgun og úrvinnslu.

Í dag mun Fjallabyggð og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra fara um sveitarfélagið og merkja járnarusl, bílhræ og fleira sem stendur á lóðum og utan lóða.

Eigendur eru beðnir um að fjarlægja alla hluti innan tímamarka. Að öðrum kosti mun sveitarfélagið fjarlægja þá á kostnað eiganda.

Mikið óþarfa rusl er á opnum svæði í báðum þéttbýliskjörnum Fjallabyggðar og eru íbúar beðnir um að líta sér nær og losa á sorpsvæði því sem á heima þar.

Hreinsunarátakið Fegrum Fjallabyggð mun halda áfram næstu vikurnar.“