Fulltrúar Fjallabyggðar og starfsmenn í áhöfn Valiant Lady við merkjaskipti um borð í skipinu í gær.
Valiant Lady frá Virgin Voyages kom í fyrsta skipti til Íslands í gær og hafði viðkomu í Siglufirði. Skipið er það stærsta sem hefur komið til Siglufjarðar með mestan fjölda farþega og starfsmanna. Farþegarnir eru 2.762 og starfsmenn í áhöfn 1.150.
Bæjarstjórn og Framkvæmda-, veitu- og hafnarnefnd var boðið um borð í skipið til að skiptast á minnismerkjum en slík er venjan þegar skip koma í fyrsta skipti á áfangastaði sína. Þetta mun vera í fyrsta skipti í 15 ár sem slíkt er gert hjá sveitarfélaginu Fjallabyggð.
Skipið er 278 metra langt og 38 metra breitt, er 110.000 brúttótonn og telur 17 hæðir (dekk).
Litlir ferjubátar sigldu farþegum til hafnar á Siglufirði þar sem þeir nutu afþreyingar í sveitarfélaginu sem og á öllu Norðurlandi.
Aðrar viðkomustaðir Valiant Lady á Íslandi eru Ísafjörður og Reykjavík.

Flott útsýni til Siglufjarðar af útisvæði um borð í Valiant Lady

Sundlaugarsvæðið um borð

Valiant Lady skömmu fyrir brottför í gær.

Litlir bátar ferjuðu farþegar til hafnar á Siglufirði