Tillaga að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis í Ólafsfirði. Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti þann 5. nóvember 2025 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi íþróttasvæðis í Ólafsfirði, í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið breytingarinnar er að bæta við nýjum byggingarreit (B4) fyrir knatthöll, sem mun stuðla að bættri aðstöðu til íþróttaiðkunar allt árið um kring. Breytingin felur jafnframt í sér stækkun skipulagssvæðisins til norðurs, þar sem aðkoma og tengingar milli bílastæða við skóla og íþróttasvæði eru endurbættar til að tryggja greiða og örugga umferð.
Tillaga að breyttu deiliskipulagi er aðgengileg á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar á slóðinni skipulagsgatt.is/issues/2025/1503, þar sem einnig er hægt að skila inn athugasemdum og ábendingum rafrænt.
Einnig er hægt að kynna sér tillöguna á bæjarskrifstofu Fjallabyggðar, Gránugötu 24 á Siglufirði og í Bylgjubyggð 2b Ólafsfirði.
Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er frá og með 19. nóvember 2025 til og með 2. janúar 2026. Tillagan verður jafnframt kynnt á íbúafundi sem haldinn verður í Tjarnarborg þann 19.nóvember kl. 18:00.
