Breyting á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og heildarendurskoðun deiliskipulags Leirutanga

Leirutangi Siglufirði

Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti þann 21. maí sl. að auglýsa tillögur að breytingu á Aðalskipulagi Fjallabyggðar 2020-2032 og heildarendurskoðun deiliskipulags Leirutanga, í samræmi við 31. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Markmið þessarar endurskoðunar er að búa betur um þá starfsemi sem fyrir er á svæðinu og kanna uppbyggingarmöguleika fyrir létta athafna- og hafnarstarfsemi á norðausturhluta tangans. Jafnframt er lögð áhersla á að skoða hvernig svæðið geti nýst betur fyrir fjölbreytta ferðaþjónustu og útivist þannig að ólík starfsemi geti samræmst og styrkt heildarmynd og notagildi svæðisins.

Nánari upplýsingar eru á skipulagsgátt HMS:

Aðalskipulagsbreyting: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/266

Deiliskipulagsbreyting: https://skipulagsgatt.is/issues/2026/267

Tillögurnar liggja einnig frammi á upplýsingatöflu á 3.hæð Ráðhúss Fjallabyggðar við Gránugötu 24 á Siglufirði.

Frestur til að skila inn athugasemdum er frá 20. ágúst til og með 1. október 2026. Eingöngu er tekið við athugasemdum og ábendingum á rafrænan hátt í gegnum skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum í gegnum netfangið taeknideild@fjallabyggd.is eða hjá skipulagsfulltrúa í síma 464-9100.