Bilun í borholu Rarik: Íbúar beðnir um að fara sparlega með heitt vatn.

Vegna bilunar í borholu Rarik á Siglufirði er minna framboð á heitu vatni. Þetta getur fram í skeyti til íbúa sem sent var út í dag. Notendur eru af þeim sökum beðnir um að fara sparlega með heitt vatn þar til viðgerð er lokið en búist er við að það verði klukkan 16 þann 3. mars.

Vegna þessa hefur verið tekin ákvörðun um að heiti potturinn í Sundhöll Siglufjarðar verður lokaður þar til bilun í borholu Rarik er lokið.

Nánari upplýsingar um bilunina veitir stjórnstöð Rarik í síma 528-000. Kort af áhrifasvæði má sjá á www.rarik.is/rof.

 


Mynd af vefsíðu www.rarik.is/rof