Bæjarstjórn heimsótti JE Vélaverkstæði

Sandra Finnsdóttir ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum
Mynd birt með leyfi Hjalta Gunnarssonar
Sandra Finnsdóttir ásamt bæjarstjóra og bæjarfulltrúum
Mynd birt með leyfi Hjalta Gunnarssonar

Eigendur og forsvarsmenn JE Vélaverkstæðis buðu bæjarstjóra og kjörnum fulltrúum Fjallabyggðar nýverið í heimsókn þar sem gestir fengu tækifæri til að kynna sér starfsemi fyrirtækisins og framtíðaráform þess.

Heimsóknin var í framhaldi af erindi fyrirtækisins til bæjaryfirvalda vegna fyrirhugaðra breytinga og stækkunar á hafnarsvæðinu sem tengjast áformum um aukin umsvif fyrirtækisins.

Heimsóknin var bæði fróðleg og gagnleg og gaf góða innsýn í starfsemi fyrirtækisins og hugmyndir þess um framtíðaruppbyggingu.