Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga.

Hólsdalur
Hólsdalur

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt að hefja undirbúningsframkvæmdir vegna Fljótaganga. Framkvæmdin snýr að vatnsbólinu í Hólsdal á Siglufirði og er ætlunin að tryggja vatnsgæði á framkvæmda- og rekstrartíma jarðganganna. Sveitarfélagið hefur óskað eftir því að gerðar verði rannsóknir á hvar vatn sé að finna í jörðu og ef það finnst verður borað eftir því. Þetta er öruggasta leiðin til þess að tryggja vatnsöryggi á svæðinu.

Verkefnið verður unnið í samvinnu við Vegagerðina sem einnig ætlar að taka þátt í kostnaði vegna þess. Von er á sérfræðingum í vikunni á svæðið til rannsókna. Finnist góð staðsetning má gera ráð fyrir að borað verði á allra næstu vikum.

Málið verður tekið upp formlega í bæjarráði á fimmtudag.