Bæjarstjórn Akureyrarbæjar í heimsókn í Fjallabyggð

Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Akureyrarbæjar og Fjallabyggðar við Ráðhús Fjallabyggðar á föstudag.
Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Akureyrarbæjar og Fjallabyggðar við Ráðhús Fjallabyggðar á föstudag.

Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Akureyrarbæjar komu í vináttuheimsókn í Fjallabyggð s.l. föstudag og hittu fulltrúa úr bæjarstjórn Fjallabyggðar. Heimsóknin var óformleg en bæjarfulltrúarnir ræddu meðal annars málefni sveitarfélaganna og málefni sem landshlutinn þarf að beita sér fyrir í hagsmunagæslu fyrir íbúa svæðisins. Fundir sem þessir styrkja tengsl á milli sveitarfélaganna og opna á opnara og betra samtal í framtíðinni um ýmis málefni. Fjallabyggð tók á móti gestum sínum í blíðskapar veðri og glampandi sól.