Aurskriða í Brimnesdal hefur áhrif á neysluvatn

Aurskriða féll í Brimnesdal í morgun og hefur það í för með sér að litur hefur komið í kalt neysluvatn. Strax í morgun var hafist handa við að hreinsa vatnið og er unnið hratt að því að koma vatninu í eðlilegt horf. Gert er ráð fyrir að vatnið verði orðið hreint síðar í dag.