Auglýst er eftir umsjónarmanni/svæðisstjóra á skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði í 100% starf frá 1. desember 2026 til 31. maí 2027.
Helstu verkefni
- Dagleg stjórnun og umsjón með rekstri skíðasvæðisins.
- Skipulagning vinnu og verkstjórn starfsmanna.
- Umsjón með lyftum, tækjabúnaði og öðrum mannvirkjum svæðisins.
- Eftirlit og framkvæmd í öryggismálum.
- Umsjón með viðhaldi búnaðar og eftirfylgni við reglubundnar skoðanir.
- Þátttaka í fjárhags- og rekstrareftirliti í samráði við yfirmenn.
- Samskipti við gesti, félagasamtök og aðra hagsmunaaðila.
- Undirbúningur skýrslna og upplýsinga til stjórnenda sveitarfélagsins.
- Önnur verkefni sem falla eðlilega undir starfssvið umsjónarmanns.
- Samstarf við björgunarsveit, snjóflóðaeftirlit og aðra þjónustuaðila eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af stjórnun og/eða rekstri er æskileg.
- Þekking og reynsla af skíðasvæðarekstri eða sambærilegri starfsemi er kostur.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
- Góð tölvukunnátta.
- Gild ökuréttindi.
- Vinnuvélaréttindi eru kostur
- Hæfni til að vinna undir álagi og bregðast við ófyrirséðum aðstæðum.
- Hreint sakarvottorð í samræmi við íþróttalög og æskulýðslög
Áhugasömum aðilum er bent á að senda inn umsókn og upplýsingar á fjallabyggd@fjallabyggd.is og er frestur til og með 20. nóvember n.k.
Frekari upplýsingar veitir Þórir Hákonarson í síma 860-2069 eða með tölvupósti á póstfangið thorirh@fjallabyggd.is