Á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar þann 28. apríl var ársreikningur ársins 2025 samþykktur samhljóða með 7 atkvæðum bæjarfulltrúa.
Bæjarstjóri greindi frá helstu niðurstöðum reikningsins en reksturinn var í góðu jafnvægi á árinu og rekstrarafgangur umtalsvert meiri en áætlun gerði ráð fyrir eða um 241 milljón króna þar sem gert var ráð fyrir um 45 milljónum króna í rekstrarafgang.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun við afgreiðslu ársreikningsins:
“Samkvæmt framlögðum ársreikningi ársins 2025 er rekstrarniðurstaða ársins jákvæð um ríflega 240 milljónir króna að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða þrátt fyrir að hækkun lífeyrisskuldbindinga sem færð er til gjalda sé um 281 milljón króna á árinu. Rekstrargjöld ársins eru í jafnvægi og í samræmi við áætlanir og hlutfall launakostnaðar lækkar úr tæpum 57% af rekstrartekjum í 50%.
Veltufé frá rekstri, þ.e. það fjármagn sem stendur eftir úr rekstri sveitarfélagsins og hægt er að nýta m.a. til framkvæmda, er á árinu 2025 771 milljón króna og hækkar um 423 milljónir á milli ára sem er ánægjuleg niðurstaða og gefur aukna möguleika á fjárfestingum og framkvæmdum til lengri tíma. Hlutfall veltufjár frá rekstri af heildartekjum tvöfaldast á milli áranna 2024 og 2025 eða úr 7,9% í 15,3%.
Niðurstaða ársreiknings og þróun reksturs á árinu 2025 sýna ábyrga fjármálastjórnun á árinu og gert er ráð fyrir sömu þróun í áætlun fyrir árið 2026.“
Niðurstöður ársreikningsins gefa möguleika á auknum fjárfestingum og framkvæmdum á yfirstandandi ári enda hefur veltufé frá rekstrinum hækkað verulega og svigrúm skapast til þess að endurskoða framkvæmdaáætlun ársins 2026 með frekari framkvæmdir í huga.