Ályktun bæjarstjórnar Fjallabyggðar um samgöngumál

Mynd tekin á dögunum við lokun á Siglufjarðarvegi í átt að Strákagöngum.
Mynd tekin á dögunum við lokun á Siglufjarðarvegi í átt að Strákagöngum.

Á bæjarstjórnarfundi Fjallabyggðar, 19. mars 2026 var eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Í ljós þeirra aðstæðna sem skapast hafa á utanverðum Tröllaskaga síðustu daga og vikur beinir bæjarstjórn Fjallabyggðar því til innviðaráðherra og þingmanna allra að tryggja framgang fyrirliggjandi samgönguáætlunar hvað varðar jarðgangagerð frá Siglufirði í Fljót í Skagafirði, svokölluð Fljótagöng.

Íbúar Fjallabyggðar hafa búið við það undanfarna daga og vikur að fjölmörg snjóflóð hafa fallið við samgöngumannvirki, annað hvort við Ólafsfjarðarmúla eða á Siglufjarðarveg sem hefur þýtt tíðar lokanir á þessum leiðum eða óvissustig vegna snjóflóðahættu hefur verið gefið út af Veðurstofu. Ofan á það bætist að beint var til íbúa Siglufjarðar um tíma að vera ekki á ferli á hafnarsvæðinu þar sem líkur væru á snjóflóðum austan megin í Siglufirði sem gæti haft það í för með sér að hafnarsvæðið yrði fyrir flóðbylgjum sem hugsanlega gætu þá lokað fyrir hafnarsvæðið.

Þetta er gríðarlega mikilvægt öryggismál fyrir íbúa svæðisins, vegfarendur og atvinnulíf. Þó svo að leiðir séu ekki lokaðar en gefið út óvissustig þá eru vegfarendur ekki öruggir og því miður hafa á undanförnum dögum fallið snjóflóð á veginn við Ólafsfjarðarmúla þegar vegur var opinn vegfarendum en óvissustig var í gangi. Eyjafjarðarsvæðið er eitt atvinnusvæði og sækja margir íbúar á svæðinu vinnu til og frá Fjallabyggð. Síðustu daga hafa því margir ekki komist til vinnu sem ekki getur talist ásættanleg og alls ekki til framtíðar litið. Svo ekki sé minnst á aðgengi að Sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir íbúa Fjallabyggðar. Mikilvægt er því samhliða framkvæmdum við Fljótagögn að nauðsynlegir fjármunir séu tryggðir til rannsókna þannig að hægt sé að ákveða legu nýrra jarðganga á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur/Eyjafjarðar og hefja frumhönnun.

Í yfirliti frá Veðurstofu má sjá að tugir snjóflóða hafa fallið á utanverðum Tröllaskaga undanfarna sólarhringa og mörg þeirra á vegi beggja vegna Fjallabyggðar, þ.e. Skagafjarðarmegin og Eyjafjarðarmegin. Íbúar sveitarfélagsins Fjallabyggðar hafa búið við mikla óvissu og öryggisleysi af þessum sökum og leggur bæjarstjórn Fjallabyggðar áherslu á að ríkisstjórn og þingmenn allir bregðist við og tryggi fyrirhugaðar framkvæmdir við Fljótagöng sem auka munu verulega öryggi, ekki aðeins við þær aðstæður sem nú hafa verið uppi heldur einnig í vatnsveðrum að vori og hausti sem lokar Siglufjarðarvegi vegna jarðsigs og skriðufalla.“

Þórir Hákonarson, bæjarstjóri.

Ályktunin var send á eftirfarandi:

Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson
Forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir
Utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Mennta – og barnamálaráðherra, Inga Sæland
Þingmenn Norðausturkjördæmis
Þingmenn Norðvesturkjördæmis