Sunnudaginn 15. nóvember verður alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa haldinn um allan heim. Af því tilefni verða minningarathafnir á Siglufirði og í Ólafsfirði í samstarfi við viðbragðsaðila í Fjallabyggð.
Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember minningu þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Markmið dagsins er jafnframt að vekja athygli á ábyrgð hvers og eins í umferðinni og þakka þeim viðbragðsaðilum sem sinna hjálpar- og björgunarstörfum þegar slys verða.
Í ár er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur, einkum unga ökumenn, sem eru hlutfallslega í meiri hættu en aðrir í umferðinni. Með því er sjónum beint að mikilvægi fræðslu, forvarna og ábyrgrar hegðunar í umferðinni.
Minningarstund á Siglufirði kl. 17:00
Slysavarnadeildin Vörn stendur fyrir minningarathöfn í samstarfi við viðbragðsaðila. Athöfnin fer fram við kirkjutröppurnar neðan við Siglufjarðarkirkju kl. 17:00.
Hafdís Huld, bæjarstjóri Fjallabyggðar, mun flytja ávarp og þeirra sem látist hafa í umferðinni verður minnst með einnar mínútu þögn. Tryggvi mun flytja nokkur tónlistaratriði og að athöfn lokinni verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur.
Minningarstund í Ólafsfirði kl. 18:00
Í Ólafsfirði fer minningarstund fram í kirkjugarðinum kl. 18:00.
Sr. Stefanía Steinsdóttir mun flytja hugvekju og slysavarnakonur úr slysavarnadeildinni Hyrnu bjóða viðstöddum upp á heitt kakó.
Sameinumst í minningu og forvörnum
Minningardagurinn er mikilvæg áminning um að umferðaröryggi er sameiginleg ábyrgð okkar allra. Minnumst þeirra sem hafa látist í umferðinni og sýnum samstöðu með aðstandendum og viðbragðsaðilum. Að minningardeginum á Íslandi standa Samgöngustofa, innviðaráðuneytið, Sjálfsbjörg, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan, Lögreglan, Vegagerðin og ÖBÍ réttindasamtök.