Allir með – íþróttahátíð á Akureyri
Sunnudaginn 22. mars kl. 14:00–15:15 verður haldin skemmtileg Allir með íþróttahátíð í Íþróttahöllinni á Akureyri.
Við hvetjum börn og fjölskyldur í Fjallabyggð til að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði þar sem markmiðið er að hvetja börn til hreyfingar og skapa gleði og góða stemningu.
Æfingin er sett upp í stöðvakerfi þar sem þátttakendur fara í gegnum fjölbreyttar og skemmtilegar þrautir á sínum eigin forsendum. Með á staðnum verður einnig Sóla lukkudýr verkefnisins Allir með.
Börn utan Akureyrar eru sérstaklega hvött til að taka þátt og gera jafnvel skemmtilega æfingaferð með fjölskyldunni, kynnast nýju fólki og njóta hreyfingar saman.
Hægt er að skrá sig í gegnum QR-kóða á auglýsingunni, en einnig er velkomið að mæta án skráningar.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook viðburðinum: