🌟 Allir með – Fjallabyggð laugardaginn 21 febrúar 🌟

Það styttist í næstu Allir með æfingu sem verður í Íþróttahúsinu á Ólafsfirði, laugardaginn 21. febrúar kl. 12:30–13:30.

Æfingin er sérstaklega ætluð börnum á grunnskólaaldri með stuðningsþarfir, þar sem lögð er áhersla á jákvætt, öruggt og styðjandi umhverfi. Við hvetjum fjölskylduna til að koma með og upplifa gleði og samveru.

Á staðnum verða þjálfarar á vegum UÍF og margt skemmtilegt verður í boði, t.d. badminton, blak, pokakast, fleira fjör. Erini júdóþjálfari frá KA kemur einnig og tekur þátt og Sóla auðvitað líka.

Ekki þarf að skrá sig – bara mæta og vera með

Við hlökkum til að sjá ykkur!