Allir með æfing! Æfing fyrir börn með stuðningsþarfir á Grunnskólaaldri


Æfing fyrir börn með stuðningsþarfir á Grunnskólaaldri, 21.febrúar 12:30 - 13:30 í íþróttahúsinu á Ólafsfirði

Allir fá að prófa á sínum forsendum æfingarnar eru hugsaðar fyrir börn sem til dæmis þurfa meiri stuðning, hentar betur að vera í minni hópum og hafa aðgang að fleiri þjálfurum á æfingum. Íþróttaæfingarnar fylgja markmiðum verkefnisins Allir með. Verkefnið er samstarfsverkefni íþróttahéraða á Norðurlandi eystra, aðildarfélaga og sveitarfélaga. Æfingarnar eru iðkendum að kostnaðarlausu.

Við hvetjum öll til að mæta, bæði þau sem búa á svæðinu og líka þau sem eru í nágrenninu.