Áfram unnið við útskipti á neyðarsímaskápum í Héðinsfjarðargöngum

Framkvæmdir við útskipti á neyðarsímaskápum í Héðinsfjarðargöngum halda áfram þessa vikuna. Unnið verður á kaflanum frá Siglufirði yfir í Héðinsfjörð, bæði í útskotum ganganna og á milli þeirra.

Á meðan unnið er á milli útskota verður umferðarhraði lækkaður verulega og umferðarstýring við vinnusvæðið til að tryggja öryggi vegfarenda og starfsfólks.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna sérstaka aðgát á framkvæmdasvæðinu og virða tímabundnar hraðatakmarkanir og fyrirmæli umferðarstýringar.

Jafnframt eru vegfarendur beðnir um að sýna tillitssemi og þolinmæði meðan á framkvæmdum stendur.