Mynd af vef Veðurstofu Íslands
Hér á eftir má lesa texta frá Snjólfóðavakt Veðurstofu Íslands:
"Nokkuð stórt snjóflóð féll á varnargarðinn Stóra-Bola ofan við innsta hluta þéttbýlisins á Siglufirði um hádegisbil í dag. Það rann meðfram honum niður að garðsenda en stöðvaðist þó talsvert ofan þjóðvegar. Þarna eru snjóflóð algeng og var búist við að slíkt gæti gerst núna eftir mikla snjókomu yst á Tröllaskaga undanfarna daga. Varað hefur verið við umferð fólks á þessu svæði síðan á fimmtudag, þar sem snjóflóð geta runnið langt út á undirlendið innan við bæinn meðfram varnargarðinum. Upptökin sjást ekki vel vegna veðurs en svo virðist sem hlaupið hafi úr Ytra-Strengsgili og Jörundarskál og tungurnar sameinast við neðri enda varnargarðsins. Flóðtungan virðist vera um 2 m þykk og hefur rofið með sér hríslur og annan gróður.
Stórt snjóflóð hefur einnig fallið úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði. Það kom úr næsta gili norðan við hestahúsahverfið, sem er norðan við gangamunna Héðinsfjarðarganga. Í veðrinu hefur fólk verið beðið um að takmarka umferð um hesthúsin vegna mögulegrar snjóflóðahættu."
Fylgjast má með vaktinni á https://gottvedur.is/snjoflod/