Undanfarin ár hefur Fjallabyggð gefið út viðburðadagatal fyrir jólin þar sem m.a. er birt dagskrá hinna ýmsu þjónustuaðila, félaga, safna og setra, skóla, kirkjunnar og fleira. Ef þú vilt koma þínum viðburði til skila til íbúa með þátttöku í dagatalinu þarftu að senda upplýsingar um hann á netfangið fjallabyggd@fjallabyggd.is fyrir 16. nóvember næstkomandi.
Birting í dagatalinu er án endurgjalds og verður m.a. birt á vef Fjallabyggðar.
Jólaljósin tendruð
Ljósin verða tendruð á jólatrénu á Ráðhústorginu á Siglufirði sunnudaginn 30. nóvember og við Tjarnarborg á Ólafsfirði föstudaginn 5. desember. Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar.
Jólamarkaður í Tjarnarborg
Hinn árlegi jólamarkaður Tjarnarborgar á Ólafsfirði verður haldinn föstudaginn 5. desember. Nánari tímasetningar verða auglýstar síðar. Þeir sem hafa hug á því að fá borð eða panta jólahús vinsamlegast hafi samband við Ástu í síma 853 8020 eða á netfangið astas@fjallabyggd.is.
