10. bekkur Grunnskóla Fjallabyggðar sigrar í Fjármálaleikunum 2025

Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2025! 10. bekkur Grunnskóla Fjallabyggðar tók gullið heim – til hamingju!
Sigurvegarar Fjármálaleikanna 2025! 10. bekkur Grunnskóla Fjallabyggðar tók gullið heim – til hamingju!

Nemendur 10. bekkjar Grunnskóla Fjallabyggðar unnu til glæsilegs sigurs í Fjármálaleikunum 2025, landskeppni grunnskólanna í fjármálalæsi sem haldin er árlega af samtökum fjármálafyrirtækja. Keppnin hefur vaxið jafnt og þétt síðustu ár og nú tóku yfir þúsund grunnskólanemendur þátt víðsvegar að af landinu.

Sigurinn tryggði skólanum farandbikar og peningaverðlaun að upphæð 200.000 krónur. Þá munu tveir nemendur úr 10. bekk taka þátt fyrir hönd Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi, sem fram fer í Brussel í maí næstkomandi.

Í gær komu þau Ingi Steinar, María Petra og Tinna fyrir hönd fjármálafyrirtækja og afhentu verðlaunin við hátíðlega athöfn í skólanum.

Fjármálaleikarnir eru spurningakeppni sem ætlað er að efla fjármálalæsi ungs fólks. Spurningarnar taka m.a. til útreikninga á vöxtum lána og sparnaðar, trygginga, réttinda og skyldna á vinnumarkaði, lífeyrissparnaðar og atriða er varða verðbólgu, gengissveiflur og fjármálaskilning almennt.

Við erum afar stolt af okkar nemendum og óskum þeim og Sigurlaugu Rögnu stærðfræðikenna innilega til hamingju með árangurinn!


Frekari upplýsingar um keppnina má finna á www.fjarmalavit.is