1-1-2 dagurinn í Fjallabyggð

Það var mikið um að vera á 1-1-2 deginum í Fjallabyggð í ár. Dagurinn hófst með rýmingaræfingu í báðum grunnskólum sveitarfélagsins, í Ólafsfirði og Siglufirði. Þar æfðu starfsfólk og nemendur verklag um hvernig rýma á skólahúsin ef til neyðar kemur.

Síðdegis opnuðu svo Björgunarsveitin Tindur, Ólafsfirði og Björgunarsveitin Strákar hús sín þar sem öllum var boðið að koma og kynnast starfsemi þeirra og annarra viðbragðsaðilar sem einnig voru á svæðinu, eins og lögreglu, sjúkraflutninga HSN og Slökkvilið Fjallabyggðar. Þá sáu voru fulltrúar slysavarnadeildanna einnig á svæðinu.

Á Ólafsfirði klipptu slökkviliðsmenn ökutæki og fengu gestir að fylgjast með. Deginum lauk svo með hópakstri viðbragðsaðilar á Siglufirði.

 

 

 

 













Slökkviliðsmenn í Ólafsfirði sýna hvernig klippur eru notaðar við björgunarstörf.


Tækin undirbúin.


Rýmingaræfing í grunnskólanum á Siglufirði.


Börnin fengu að skoða tæki viðbragðsaðila.


Rýmingaræfing í grunnskólanum á Ólafsfirði.


Sjúkraflutningamenn HSN sýna sinn tækjabúnað.