Skipulags- og umhverfisnefnd Fjallabyggðar

181. fundur 09. apríl 2015 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Guðmundur J Skarphéðinsson formaður, F lista
  • Hilmar Þór Elefsen varaformaður, S lista
  • Nanna Árnadóttir aðalmaður, S lista
  • Brynja Ingunn Hafsteinsdóttir aðalmaður, D lista
  • Jón Valgeir Baldursson aðalmaður, B lista
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Íris Stefánsdóttir tæknifulltrúi
Fundargerð ritaði: Íris Stefánsdóttir Tæknifulltrúi

1.Umsókn um lóð, Lækjargata 6c

Málsnúmer 1404066Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Jóns Hrólfs Baldurssonar og Ólafar Kristínar Daníelsdóttur vegna aðgengis að húsi þeirra við Lækjargötu 4c og afnotasamning fyrir lóðina Lækjargötu 6c.

Tæknideild er falið að útbúa afnotasamning fyrir Lækjargötu 6c með aðgengi frá Lækjargötu. Jafnframt boðar nefndin Jón Hrólf Baldursson og Ólöfu Kristínu Daníelsdóttur á næsta fund nefndarinnar.

2.Breytingar á húsi við Hvanneyrarbraut 15 Siglufirði

Málsnúmer 1504001Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi húseiganda að Hvanneyrarbraut 15. Óskað er eftir áliti nefndarinnar á fyrirhuguðum breytingum á húsinu áður en farið er í frekari útfærslur.

Nefndin tekur jákvætt í erindið og felur tæknideild að grenndarkynna breytingarnar hjá húseigendum við Hvanneyrarbraut 13 og 17 og Vallargötu 3 og 7.

3.Umsókn um leyfi fyrir svölum við Laugarveg 7, Siglufirði

Málsnúmer 1504007Vakta málsnúmer

Ólafur Kárason sækir um leyfi til að byggja svalir við Laugarveg 7 fyrir hönd húseiganda. Lagðar fram skissur af svölunum.

Nefndin samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti með fyrirvara um að fullnægjandi teikningum verði skilað inn.

4.Tilkynning um sölu á jörðinni Kvíabekk

Málsnúmer 1210040Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar afsal vegna sölu á jörðinni Kvíabekk.

Fundi slitið.