Öldungaráð Fjallabyggðar

10. fundur 10. mars 2026 kl. 14:30 - 15:30 Bylgjubyggð 2b, Ólafsfirði
Nefndarmenn
  • Sæbjörg Ágústsdóttir varaformaður
  • Björn Þór Ólafsson fulltrúi eldri borgara
  • Þorbjörn Sigurðsson fulltrúi eldri borgara
  • Elín Arnardóttir fulltrúi heilsugæslu
  • Katrín Freysdóttir Varamaður
  • Pálína Pálsdóttir Varamaður
  • Brynhildur Bjarkadóttir Varamaður
Starfsmenn
  • Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Fundargerð ritaði: Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs

1.Starfsemi velferðarsviðs 2026

Málsnúmer 2602017Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fer yfir starfsemi velferðarsviðs.
Lagt fram til kynningar
Sviðsstjóri fór yfir verkefni félagsþjónustunnar vegna ársins 2025.

2.Áherslur LEB

Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer

Áherslur Landssambands eldri borgara (LEB) í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Lagt fram til kynningar
Áherslur LEB lagðar fram til kynningar. Öldungaráð vill hvetja sveitarstjórn til þess að huga að húsnæði fyrir félagsstarf eldri borgara á Siglufirði.

3.Almenn mál

Málsnúmer 2603016Vakta málsnúmer

Upplýsingar frá HSN
Lagt fram til kynningar
Elín frá HSN segir frá því að nú sé fólkið hvatt til þess að nýta heilsugæsluna varðandi þjónustukerfi sem eru oft flókin og gæta að eigin heilsu. Sextíu ára og eldri hafa kost á heilsueflandi móttöku á heilsugæslunni. Hægt er að bóka tíma hjá móttökuritara.
Öldungaráð þakkar Elínu fyrir upplýsingarnar og hvetur fólk til að nýta sér þessa þjónustu.

Fundi slitið - kl. 15:30.