Markaðs- og menningarnefnd Fjallabyggðar

25. fundur 14. apríl 2016 kl. 17:00 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Arndís Erla Jónsdóttir formaður, F lista
  • Ægir Bergsson varaformaður, S lista
  • Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir aðalmaður, D lista
  • Guðlaugur Magnús Ingason aðalmaður, F lista
  • Helga Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi, B lista
  • Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri fræðslu- frístunda- og menningarmála
Fundargerð ritaði: Kristinn J. Reimarsson deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála
Sæbjörg Ágústsdóttir mætti ekki og engin varamaður í hennar stað.

1.Skráning menningarerfða í Fjallabyggð

Málsnúmer 1604013Vakta málsnúmer

Samþykkt
Á fundinn mætti Guðrún Ingimundardóttir frá ÞjóðList ehf. og kynnti verkefnið.
Á þessu ári fer í gang samstarfsverkefni Íslands og Noregs um skráningu menningarerfða í héraði, styrkt af Norsk-íslenska menningarsjóðnum. Á Íslandi verður verkefnið unnið í Fjallabyggð af ÞjóðList ehf. og Síldarminjasafninu.
Markmiðið með verkefninu er að:
-Leita heppilegra leiða til að vinna með samfélögum við að skrá menningarerfðir sínar og skilgreina verkferla sem önnur samfélög geta síðan stuðst við.
- Skrá menningarerfðir með því að nota eyðublað sem norsku samstarfsaðilarnir hafa þróað, til að rannsaka hvernig og hvort formið hentar.
- Rannsaka með hvaða hætti er heppilegast að hafa skráninguna aðgengilega.
- Afla upplýsinga sem hjálpa til við að þróa landslista yfir menningarerfðir.

Nefndin þakkar Guðrúnu fyrir greinargóða kynningu og óskar henni velfarnaðar í þessari vinnu. Nefndin óskar jafnframt eftir að markaðs- og menningarfulltrúi Fjallabyggðar fái að fylgjast með framvindu verkefnisins.

2.17. júní 2016

Málsnúmer 1603047Vakta málsnúmer

Samþykkt
Á fundi markaðs- og menningarnefndar þann 14. mars var samþykkt að auglýsa eftir aðilum/félagasamtökum í Fjallabyggð til að taka að sér framkvæmd 17. júní hátíðarhaldanna í bænum. Ein umsókn barst frá Starfsmannafélagi slökkviliðsins í Ólafsfirði.
Nefndin samþykkir að fela starfsmannafélaginu umsjón með hátíðarhöldunum og felur deildarstjóra fræðslu-, frístunda- og menningarmála að leggja fram samning við starfsmannafélagið á næsta fundi nefndarinnar.

Fundi slitið.