Hafnarstjórn Fjallabyggðar

101. fundur 18. desember 2018 kl. 17:00 - 17:45 í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði
Nefndarmenn
  • Tómas Atli Einarsson formaður, D lista
  • Hrafnhildur Ýr Denke Vilbertsdóttir varaformaður I lista
  • Andri Viðar Víglundsson aðalmaður, H lista
  • Ægir Bergsson aðalmaður, I lista
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
Guðmundur Gauti Sveinsson boðaði forföll og einnig varamaður hans.

1.Aflatölur og aflagjöld 2018

Málsnúmer 1802088Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. janúar - 18. desember 2018 ásamt samanburði við sama tíma árin 2017 og 2016.
2018 Siglufjörður 22771 tonn í 1806 löndunum.
2018 Ólafsfjörður 472 tonn í 451 löndunum.
2017 Siglufjörður 18499 tonn í 2117 löndunum.
2017 Ólafsfjörður 562 tonn í 517 löndunum.
2016 Siglufjörður 24038 tonn í 2115 löndunum.
2016 Ólafsfjörður 645 tonn í 583 löndunum.

2.Rekstraryfirlit - 2018

Málsnúmer 1804092Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir rekstraryfirlit Fjallabyggðarhafna. Rekstrarniðurstaða er ívið betri en fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir.

3.Starfsmannamál - trúnaðarmál

Málsnúmer 1811025Vakta málsnúmer

Undir þessum lið vék Þorbjörn Sigurðsson af fundi.
Niðurstaða færð í trúnaðarbók.

4.Minnisblað um stöðu landtenginga

Málsnúmer 1811102Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

5.Ályktun um öryggi í höfnum

Málsnúmer 1811101Vakta málsnúmer

Eftirfarandi er ályktun 41. hafnasambandsþings um öryggi í höfnum.
"Hafnasambandsþing haldið í Reykjavík dagana 25-26. október 2018 beinir þeim tilmælum til hafna að unnið verði áhættumat þar sem leitast verður við að benda á hættur sem stafað geta að þeim sem fara um hafnarsvæði og hafnarbakka. Því er beint til stærri hafna að unnið verði að öryggisvottun hafnanna. Íslenskar hafnir uppfylla langflestar öll ákvæði reglugerðar um öryggi í höfnum, en mikilvægt er að horfa til atriða sem ekki verða sett í reglugerðir. Útgerðir hafa náð framúrskarandi árangri í öryggismálum með markvissum aðgerðum og mikilvægt að hafnirnar láti ekki sitt eftir liggja."
Hafnarstjórn tekur undir ályktun 41. hafnasambandsþings.

6.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2018

Málsnúmer 1801012Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar, fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 406, 407 og 408.

7.Hafnasambandsþing 2018

Málsnúmer 1806070Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð frá Hafnasambandsþingi 2018.

Fundi slitið - kl. 17:45.