Hafnarstjórn Fjallabyggðar

95. fundur 16. mars 2018 kl. 16:00 - 16:30 í Fiskmarkaði Siglufjarðar, Bæjarbryggju Siglufirði
Nefndarmenn
  • Ólafur Haukur Kárason formaður, S lista
  • Steinunn María Sveinsdóttir aðalmaður, S lista
  • Margrét Ósk Harðardóttir aðalmaður, D lista
  • Þorsteinn Þorvaldsson aðalmaður, D lista
  • Guðmundur Gauti Sveinsson varamaður, S lista
  • Steingrímur Ó. Hákonarson varamaður, D lista
Starfsmenn
  • Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri
  • Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar
  • Þorbjörn Sigurðsson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði: Ármann Viðar Sigurðsson deildarstjóri tæknideildar

Á fundinn mættu frá Siglingasviði Vegagerðarinnar Fannar Gíslason og Kjartan Elíasson.

1.Aflatölur og aflagjöld 2018

Málsnúmer 1802088Vakta málsnúmer

Fjöldi landana og afli í höfnum Fjallabyggðar tímabilið 1. jan - 14. mars 2018 ásamt samanburði við sama tíma árið 2017.

2018 Siglufjörður 2403 tonn í 64 löndunum.
2018 Ólafsfjörður 52 tonn í 55 löndunum.

2017 Siglufjörður 913 tonn í 162 löndunum.
2017 Ólafsfjörður 84 tonn í 85 löndunum.

2.Sig og mælingar á þili og þekju, Bæjarbryggju

Málsnúmer 1803041Vakta málsnúmer

Fylgst hefur verið með sigi á þili og þekju bryggjunnar frá árinu 2016. Hafnarstjóri fór yfir mælingar og niðurstöður þeirra en samkvæmt síðustu mælingum þá er þilið og þekjan hætt að síga.

3.Fjárhagslegt uppgjör vegna endurbyggingar á Bæjarbryggju.

Málsnúmer 1803042Vakta málsnúmer

Hafnarstjóri fór yfir uppgjör vegna endurbyggingar á Bæjarbryggju. Heildarkostnaður við verkið er 542 mkr. m.vsk. en áætlun gerði ráð fyrir 549 mkr. m.vsk. Heildarkostnaður Hafnarsjóðs Fjallabyggðar við verkið er 117 mkr án vsk. en áætlun gerði ráð fyrir 114 mkr. án vsk.

Hafnarstjórn fagnar góðri áætlunargerð og góðri framkvæmd við verkið þar sem frávik eru óveruleg.

4.Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2018

Málsnúmer 1801012Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 16:30.